Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 745, 136. löggjafarþing 358. mál: opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi og verðbréfaviðskipti (gagnsæi í störfum Fjármálaeftirlitsins).
Lög nr. 20 23. mars 2009.
I. KAFLI
Breyting á lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi, nr. 87/1998, með síðari breytingum.
Gagnsæi í störfum Fjármálaeftirlitsins.
Fjármálaeftirlitinu er heimilt að birta opinberlega niðurstöður í málum og athugunum er byggjast á lögum þessum, nema ef slík birting verður talin stefna hagsmunum fjármálamarkaðarins í hættu, varðar ekki hagsmuni hans sem slíks eða veldur hlutaðeigandi aðilum tjóni sem ekki er í eðlilegu samræmi við það brot sem um ræðir. Fjármálaeftirlitið skal birta opinberlega þá stefnu sem eftirlitið fylgir við framkvæmd slíkrar birtingar.
II. KAFLI
Breyting á lögum um verðbréfaviðskipti, nr. 108/2007, með síðari breytingum.
Þingskjal 745, 136. löggjafarþing 358. mál: opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi og verðbréfaviðskipti (gagnsæi í störfum Fjármálaeftirlitsins).
Lög nr. 20 23. mars 2009.
Lög um breyting á lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi, nr. 87/1998, og lögum um verðbréfaviðskipti, nr. 108/2007.
1. gr.
Á eftir 9. gr. laganna kemur ný grein, 9. gr. a, sem orðast svo ásamt fyrirsögn:2. gr.
139. gr. laganna fellur brott.3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 17. mars 2009.